Cargo, fyrsta sérhæfða sendibílaleigan á Íslandi
Cargo sendibílaleiga sérhæfir sig í útleiga á sendibílum og kassabílum með lyftu til flutninga á búslóðum og vörum. Þú leigir bílinn og ekur sjálfur/sjálf og sparar þarf af leiðandi umtalsverðan kostnað.
Leigutaki fær sendibílinn fullan af diesel og skilar tanknum fullum.
Við leggjum okkur fram um að vera með góð verð ef ekki þau lægstu á markaðnum og þjónusta viðskiptavini okkar eins vel og hægt er
Best er að hringja í síma 5665030 eða senda tölvupóst og panta bílinn fyrirfram. Framvísa þarf ökuskírteini og kreditkorti sem tryggingu fyrir leigu sendibifreiðarinnar.
Bílafloti okkar samanstendur a af þrem stærðum af bílum. Í 1100 kg flokkunum erum við með Renault Trafic háþekju sendibíla sem hafa alveg einstaklega góða aksturseiginleika og eyða mjög litlu eldsneyti.
1200 kg flokkurinn eru kassabílar með lyftu sem eru einstaklega góður kostur til flutninga á stórum og meðalstórum búslóðum. Á þessa bíla þarf ekki meirapróf og þessir bílar eru mjög eyðslugrannir.
2500 kg bíllinn okkar er Benz Atego, kassabíll með lyftu sem hefur 2500 kg burðargetu og lyftir lyftan 750 kg. Þessi bíll er frábær ef um þyngri flutninga er að ræða og hentar einstaklega vel til flutninga á búslóðum út á land. Á þennan bíl þarf meirapróf eða hafa tekið ökupróf fyrir 1988.
Einnig er hægt að leigja tryllur sem eru frábærar til að flytja þvottavélar og ísskápa úr stað. Ódýr kostur til að spara á sér bakið.
Brettatjakka höfum við einnig til leigu ef að um er að ræða vörur á brettum og einnig strappa til að festa vörurnar í bílunum.
Cargo sendibílaleiga er með opið sjö daga vikunnar 8-18 mánud til föstud og 10 - 16 um helgar.
Erum alltaf með símann í vasanum.
Okkar metnaður er góð þjónusta og gott verð.
Cargo sendibílaleigan er til húsa að Skemmuvegi 32 (bleik gata) í Kópavogi, önnur gata fyrir neðan stórverslun BYKO, og fást allar nánari upplýsingar í síma 566-5030 eða á info@cargobilar.is
Opnunartími
- Virka daga frá 8:00 til 18:00
- Laugardaga frá 10:00 til 18:00
- Sunnudaga frá 10:00 til 18:00

